Umsókn um byggingarleyfi vegna viðbyggingar við fjós mhl 20

Málsnúmer 201703035

Vakta málsnúmer

Umhverfisráð - 288. fundur - 10.03.2017

Með innsendu erindi dags. 7. mars 2017 óskar Gunnsteinn Þorgilsson eftir byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við fjós mhl 20 að Sökku Svarfaðardal samkvæmt meðfylgjandi gögnum.

Umhverfisráð felur sviðsstjóra að veita umbeðið leyfi þegar öll gögn vegna málsins hafa borist.

Samþykkt með fimm atkvæðum.