Tilnefningar til Íslensku menntaverðlaunanna

Íslensku menntaverðlauninn verða nú í vor afhent í sjöunda sinn. Verðlaun þessi eru sannkölluð þjóðarverðlaun því hver og einn getur sent inn sínar tilnefningar. Við höfum flest skoðun á því hvað sé góður kennari, frábært námsefni ellegar góður skóli.  Því eru allir hvattir til að senda inn tilnefningar um þá sem þeir telja að hafi gert góða hluti og eigi skilið að fá Íslensku menntaverðlaunin, og vekja þannig athygli á því sem vel er gert í íslenskum skólum.

Verðlaunaflokkar Íslensku menntaverðlaunanna eru:

1. Skólar sem sinnt hafa vel nýsköpun eða farsælu samhengi í fræðslustarfi.

2. Kennarar sem hafa skilað merku ævistarfi eða á annan hátt skarað framúr.

3. Ungt fólk sem í upphafi kennsluferils hefur sýnt hæfileika og lagt alúð við starf sitt.

4. Höfundar námsefni sem stuðlað hafa að nýjungum í skólastarfi.

Tilnefningar skal senda hvort heldur sem er til skrifstofu forseta Íslands, Staðastað, Sóleyjargötu 1, 150 Reykjavík, eða á menntaverðlaun@foresti.is . Síðasti skiladagur tilnefninga er þriðjudagurinn 10.maí 2011.