Við erum að leita að kennara frá 1. ágúst 2013. Okkur vantar fjölhæfan kennara sem getur t.d. verið umsjónarkennari, kennt smíði-, textíl- og myndmennt!
Árskógarskóli er heildstæður leik- og grunnskóli sem tók til starfa 1. ágúst 2012. Í skólanum eru 45 börn frá 9 mánaða til og með 7. bekk grunnskóla og við hann starfa 14 frábærir starfsmenn. Skólinn vinnur samkvæmt hugmyndafræði Uppbyggingarstefnunnar, hann er Grænfánaskóli og unnið er í aldursblönduðum hópum og þvert á skólastig og einnig er útikennsla fastur liður í náminu.
Menntunarkröfur:
- Réttindi til kennslu í grunnskóla.
- Framhaldsmenntun er kostur.
Hæfniskröfur:
- Mikill áhugi á að taka þátt í mótun nýs skóla og leita nýrra leiða í skólastarfi.
- Hefur á valdi sínu fjölbreyttar kennsluaðferðir
- Þekking á kennslu- og uppeldisfræði.
- Áhugi á kennslu og vinnu með börnum.
- Frumkvæði og samstarfsvilji.
- Sveigjanleiki og víðsýni í starfi og samskiptum.
- Góðir skipulagshæfileikar.
- Hæfni í mannlegum samskiptum.
- Gleði og umhyggja.
- Reglusemi og samviskusemi.
- Hreint sakarvottorð.
Umsóknarfrestur er til 10. maí 2013
Nánar um skólann á heimasíðu: http://www.dalvikurbyggd.is/arskogarskoli/
Upplýsingar gefur Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson skólastjóri í síma 460-4971 eða gunnthore@dalvikurbyggd.is . Senda skal umsókn og ferilskrá á netfangið gunnthore@dalvikurbyggd.is og verður móttaka umsókna staðfest.