Frá sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs; Framlög Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga 2023 - endanleg

Málsnúmer 202401013

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 1092. fundur - 11.01.2024

Með fundarboði byggðaráðs fylgdi samantekt frá sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs yfir endanleg framlög Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga til Dalvíkurbyggðar vegna ársins 2023 samkvæmt fréttatilkynningum frá Innviðaráðuneytinu þann 29. desember sl.

Hækkun er kr. -71.651.101 vegna framlaga og munar þar mest um útgjaldajöfnunarframlag að upphæð kr. -65.528.519. Einnig er framlag vegna NPA samninga að upphæð kr. -16.733.844. Alls kr. -88.384.945.
Lagt fram til kynningar.