Frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra; Umsókn um rekstrarleyfi veitinga - Cafe Aroma

Málsnúmer 202306043

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn - 360. fundur - 20.06.2023

Tekið fyrir erindi frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra, dagsett þann 13. júní 2023, þar sem óskað er umsagnar vegna umsóknar um rekstrarleyfi veitinga í flokki II frá Cafe Aroma ehf vegna Cafe Aroma ( í Menningarhúsinu Bergi). Um er að ræða nýtt rekstarleyfi í stað leyfis LG-REK-015568 Menningarfélagið Berg.

Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn gerir ekki athugasemdir um að ofangreint leyfi sé veitt með fyrirvara um umsagnir slökkviliðs og heilbrigðiseftirlits.