Starfslok Dóróþeu Reimarsdóttur kennsluráðgjafa

Málsnúmer 201810041

Vakta málsnúmer

Fræðsluráð - 230. fundur - 10.10.2018

Dóróþea Reimarsdóttir kennsluráðgjafi sat í dag sinn síðasta fund í fræðsluráði en hún lætur formlega af störfum 31.október þó síðasti starfsdagur sé í dag 10.10.2018.
Fræðsluráð þakkar Dóróþeu fyrir vel unnin störf og framlag hennar til menntamála en hún hefur starfað við skólamál í Dalvíkurbyggð frá árinu 1981.