Ungó - samningur um afnot og útleigu 2018 - 2019

Málsnúmer 201809068

Vakta málsnúmer

Menningarráð - 69. fundur - 19.09.2018

Katrín Sif Ingvarsdóttir vék af fundi undir þessum lið kl. 9:27
Starfsemi í Ungó veturinn 2018-2019 til umræðu. Fundarboði fylgdu samningar við Leikfélag Dalvíkur og Gísla,Eirík, Helga ehf.
Fyrir liggur að mikill áhugi er hjá Leikfélagi Dalvíkur og Gísla,Eiríki,Helga ehf. á áframhaldandi starfsemi í Ungó veturinn 2018-2019. Menningarráð óskar eftir að lögð verði fram starfsáætlun varðandi áframhaldandi starf í Ungó frá Leikfélagi Dalvíkur og Gísla,Eirík,Helga ehf. sem verða teknar fyrir á næsta fundi Menningarráðs.
Katrín Sif Ingvarsdóttir kom aftur inn á fundinn kl. 9:44