Frá Ungmennasambandi Eyjafjarðar; Boð á 96. ársþing UMSE

Málsnúmer 201702095

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 813. fundur - 02.03.2017

Tekið fyrir bréf frá UMSE, dagsett þann 23. febrúar 2017, þar sem fram kemur að 96. ársþing UMSE verður haldið í félagsheimilinu Árskógi 9. mars n.k. og hefst kl. 18:00. UMSE býður fulltrúa frá Dalvíkurbyggð að sitja þingið.
Byggðaráð leggur til að fulltrúi úr íþrótta- og æskulýðsráði mæti á þingið fyrir hönd Dalvíkurbyggðar og felur formanni íþrótta- og æskulýðsráðs að hlutast til um það.