Vorhátíð Dalvíkurskóla

Halló krakkar, pabbar og mömmur, afar og ömmur, frænkur og frændur !!

Vorhátíð Dalvíkurskóla verður laugardaginn 14.maí frá klukkan 11:30 til 14:30. Þennan dag verður skólinn opinn öllum sem vilja skemmta sér saman og skoða afrakstur af vinnu nemenda.
 
         Meðal þess sem boðið verður upp á er:
 
Opið hús þar sem vinna nemenda verður til sýnis. 
  • Kaffihúsastemning í hátíðarsalnum.  (9. bekkur selur kaffi og meðlæti á 7oo kr. fyrir 14 ára og eldri, 300 kr. fyrir börn 6-13 ára. Frítt fyrir yngri börn).
  • Förðun og andlitsmálning.
  • Lukkupakkar sem 6. bekkur hefur til sölu á 200 kr. stk.
  • Hestar og hjólavöllur (fer eftir veðri).
  • Spilastofa.
  • Golf – kynning á tjaldsvæði.
  • Ásadans.
  • Allir fá ís í boði foreldrafélagsins.
  • Sýning á námsmöppum hjá 1. – 10. bekk.
  • Bókasafn – opið.
  • Knattspyrnuþrautir á sparkvelli.
  • Boccia
  • Myndasýning Skíðafélags Dalvíkur
  • Fimleikasýning í boði Fimleikadeildar
  • Flóamarkaður
 
 
Foreldrafélag, nemendur og starfsfólk Dalvíkurskóla.