Vettvangsferð 3.EA í Samherja

Vettvangsferð 3.EA í Samherja

Við í 3. EA enduðum daginn á magnaðri vettvangsferð í Samherja þar sem Jakob Atlason tók á móti okkur. Hann leiddi okkur í gegnum frystihúsið þá leið sem fiskurinn kemur inn í húsið og enduðum þar sem búið var að pakka fiskinum í neytendaumbúðir. Krakkarnir voru mjög áhugasamir og fengu að handfjatla fiskinn á  ólíku vinnslustigi. Að lokum var okkur öllum gefinn 100 g þorskstykki til að hafa í kvöldmatinn. Við þökkum kærlega fyrir frábæra og fróðlega skoðunarferð. Hérna eru myndir frá ferðinni.