Útivistardagur á eldra stigi

Á morgun föstudaginn 26. mars verður útivistardagur hjá eldar stigi

Mæting er við skíðaskálann Brekkusel klukkan 8:00 – 8:30, og eiga nemendur að setja sig þar í samband við umsjónarkennara. Nemendur eiga að koma vel klæddir með skíðin sín, brettin, sleða. Ekki er leyfilegt að vera með dekkjaslöngur í fjallinu. Leyfilegt verður að vera á sleðum á ákveðnu svæði. Vel útilátið nesti er nauðsynlegt, skólinn býður upp á heitt kakó handa öllum. Munið eftir aukafötum (sokkum, vettlingum, peysu......) í bakpokann. Ætlast er til að nemendur séu með HJÁLMA. Það er alfarið á ábyrgð foreldra ef þau koma hjálmalaus. Útivistardagur stendur frá kl. 8.00 /8.30 – 13.00. Matur verður í Brekkuseli frá kl. 11:30 – 12:00.
Nemendur 8.-10. bekkjar sem ætla að fara á Skólahreysti hætta í fjallinu kl. 12 til að fara heim að skipta um föt. Ströndungar þurfa að hafa fötin með sér og geta skipt um föt í skólanum.