Úrslit í Skólahreysti

Úrslit í Skólahreysti

Skólahreystiliðið okkar átti á brattan að sækja í riðlakeppninni á Akureyri. Þau John, Andrea, Elvar Óli og Ólöf gerðu sitt besta til að safna stigum fyrir skólann en því miður náðum við ekki að komast í lokakeppnina í Reykjavík þetta árið. Að vanda var keppnin skemmtileg og spennandi, og allir skemmtu sér vel í Íþróttahöllinni á Akureyri. Úrslit einstakra greina er hægt að nálgast á skolahreysti.is og hér eru nokkrar myndir frá keppninni.