Stóra upplestrarkeppnin í 7. bekk

Stóra upplestrarkeppnin í 7. bekk

28.febrúar var Upplestrarkeppnin haldin í Dalvíkurskóla. Margir sigurstranglegir keppendur tóku þátt en sigurvegari var Steinunn Birta Ólafsdóttir og í 2.sæti Guðrún María Sigurðardóttir. Varamenn voru valin Viktor Máni Katrínarson og Vigdís Sævaldsdóttir. Þau munu taka þátt í Stóru upplestrarkeppninni, ásamt krökkum úr öðrum skólum hér í kring, sem haldin verður í Bergi 19. mars.