Stóra upplestrarkeppnin

Nemendur 7. bekkjar hafa undanfarnar vikur æft af kappi undir Stóru upplestrarkeppnina. Bekkjakeppni verður haldin miðvikudaginn 9. febrúar kl. 10:30. Keppt verður um hvaða 14 nemendur muni taka þátt í lokakeppni skólans sem haldin verður miðvikudaginn 16. febrúar kl. 10 á sal skólans. Við hvetjum foreldra sem tök hafa á að kíkja í heimsókn og fylgjast með keppninni.