Starf umsjónarkennara á eldra stigi laust til umsóknar

Dalvíkurskóli óskar eftir að ráða umsjónarkennara á eldra stig skólaárið 2012 - 2013

Hæfniskröfur:
- Grunnskólakennaramenntun
- Hugmyndaríkur, jákvæður og sveigjanlegur
- Metnaðarfullur í starfi og hæfni til að vinna í hóp
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Tilbúinn að takast á við nýjar og fjölbreyttar áherslur í skólastarfi
- Tilbúinn að vinna eftir fjölbreyttum kennsluaðferðum í unglingadeild

Dalvíkurskóli er 260 nemenda grunnskóli. Einkunnarorð skólans eru: Þekking og færni, virðing og vellíðan. Í unglingadeild verður lögð áhersla á fjölbreyttar kennsluaðferðir. Næsta haust verður farið í þróunarverkefnið Orð af orði. Dalvíkurskóli er Grænfánaskóli. Í skólanum er lögð áhersla á að starfsfólki líði vel í starfi og þar er jákvæðni höfð að leiðarljósi. Allir skólar í Dalvíkurbyggð eru að innleiða Uppbyggingarstefnuna.


Umsóknarfrestur er til 4. júní
Upplýsingar gefur Gísli Bjarnason skólastjóri Grunnskóla Dalvíkurbyggðar gisli@dalvikurbyggd.is símar 4604980 og 8631329. Friðrik Arnarsson deildastjóri friðrik@dalvikurbyggd.is símar 4604980 og 8490980. Senda skal umsókn ásamt menntun og starfsferilskrá á netfangið gisli@dalvikurskoli.is.


Dalvíkurbyggð er sveitarfélag við utanverðan Eyjafjörð, um 40 km. norðan við Akureyri. Sveitarfélagið er framsækið og leggur metnað sinn í að veita íbúum góða þjónustu. Þar er blómlegt menningarlíf og fjölbreyttir möguleikar til íþróttaiðkunar og útivistar. Sveitarfélagið á metnaðarfulla skólastefnu. Að búa í Dalvíkurbyggð er kjörið fyrir fólk á öllum aldri, barnafjölskyldur, útivistarfólk og þá sem vilja njóta nálægðar við náttúruna. Það er ómetanlegt að geta stigið út úr erli hvunndagsins, dregið að sér kraft sjávarins og fjallanna og endurnært þannig sálina.