Staða laus til umsóknar

Umsjónarkennara vantar í Dalvíkurskóla               

Hæfniskröfur:
          Leyfisbréf grunnskólakennara
          Vinna eftir fjölbreyttum og árangursríkum kennsluaðferðum
          Hugmyndaríkur, jákvæður og sveigjanlegur
          Frumkvæði og metnaður í starfi og geta til að vinna í teymi
          Hæfni í mannlegum samskiptum
          Faglegur metnaður til að takast á við fjölbreyttar áherslur í skólastarfi
 
Dalvíkurskóli er 230 nemenda grunnskóli. Einkunnarorð skólans eru þekking og færni - virðing og vellíðan. Skólinn leggur áherslu á snemmtæka íhlutun í námi nemenda. Skólastarfið byggist á teymiskennslu kennara. Í skólanum er m.a. unnið eftir kennsluaðferðunum Byrjendalæsi, Orð af orði og Pals- lestraraðferðinni. Dalvíkurskóli flaggar Grænfánanum. Í Dalvíkurskóla er lögð áhersla á að starfsfólki líði vel í starfi og þar er jákvæðni höfð að leiðarljósi. Allir skólar í Dalvíkurbyggð starfa eftir Uppbyggingarstefnunni
 
Umsóknarfrestur er til 27. maí 2016
 
Upplýsingar gefur Gísli Bjarnason skólastjóri Dalvíkurskóla gisli@dalvikurbyggd.is símar 4604980 og 8631329. Umsókn ásamt ferilsskrá skal sent á netfangið gisli@dalvikurbyggd.is.