Spurningakeppni grunnskólanna - Dalvíkurskóli vann

Spurningakeppni grunnskólanna - Dalvíkurskóli vann

Lið skólans kom, sá og sigraði í Spurningakeppni grunnskólanna á Norðurlandi eystra, sem haldin var í gær. Liðið lagði einnig sigurlið úr keppni grunnskólanna á Norðurlandi vestra. Sá sigur veitir liðinu þátttökurétt í úrslitakeppni Spurningakeppni grunnskólanna sem haldin verður síðar í vetur. Viktor Daði, Jóhann Ólafur og Aníta Lind, innilega til hamingju með árangurinn. Í dag heiðraði skólinn sigurliðið og Klemenz og Magna sem hafa þjálfað liðið.
Á neðri myndina vantar Jóhann Ólaf.