Snjóvirkjagerð í Útivist

Á föstudögum er unglingastigi skipt í blandaða hópa í svokallaðri hringekju. Eitt af fögunum er útivist og í dag voru hóparnir að byggja snjóvirki. Þau létu veðrið í dag ekki á sig fá og stóðu sig mjög vel.

Hver hópur var úti í 45 mínutur.  Lítið var um væl og skæl og fannst kennurum takast vel til. Krakkarnir á yngsta og miðstigi voru mjög dugleg að hjálpa okkur þegar þau voru í frímínutum. Hér má sjá myndir frá snjóvirkjagerðinni.