Skólahreysti - úrslitakeppnin

Skólahreysti - úrslitakeppnin

Úrslitakeppni Skólahreysti 2011 var haldin í Laugardalshöll í gær. 50 krakkar úr 8.-10. bekk fylgdu keppnisliðinu okkar suður og gekk ferðin vel. Liðið okkar tók vel á því í úrslitunum og barðist hetjulega við gríðarsterk lið frá 11 skólum. Holtaskóli í Reykjanesbæ sigraði en við lentum í 8. sæti.

Við viljum þakka fyrirtækjum í bænum kærlega fyrir að styrkja okkur og gera okkur kleift að senda frábæra stuðningsmenn suður með liðinu okkar. Hér eru myndir.