Lúsasmit hefur greinst í Dalvíkurskóla

Lúsasmit hefur greinst  hjá nokkrum nemendum í Dalvíkurskóla. Bréf hefur verið sent til allra foreldra með ráðlegginum. Óskað er eftir að allir noti helgina í að leita í sínum börnum svo hægt verði að uppræta lúsina sem allra fyrst. Það skiptir mestu máli að halda ró sinni, en jafnframt að  grípa inn í eins fljótt og hægt er. Mjög mikilvægt er að tilkynna um smit til skólahjúkrunarfræðings.