Lestrarátak Ævars vísindamanns snýr aftur

Lestrarátak Ævars vísindamanns snýr aftur
Við minnum á lestrarátak Ævars vísindamanns sem nemendur skólans geta tekið þátt í.
Átakið virkar þannig að fyrir hverjar þrjár bækur sem nemendur í 1. - 7. bekk lesa fylla þau út svokallaða lestrarmiða (sem verða á skólabókasafninu hjá Ester, en einnig er hægt að sækja á heimasíðu verkefnisins). Foreldri eða kennari kvitta á hvern miða og svo verður miðinn settur í lestrarkassa á skólabókasafninu.

Í lok átaksins verða miðarnir sendir til Heimilis og skóla, en starfsfólkið þar munu sjá um að taka við þeim. Því fleiri bækur sem börnin lesa því fleiri miða eiga þau í pottinum. Það skiptir engu máli hvort bókin sem er lesin sé löng eða stutt, teiknimyndasaga, myndasögusyrpa eða skáldsaga - bara svo lengi sem börnin lesa. Sömuleiðis skiptir tungumálið sem bókin er á ekki máli. Bækurnar mega vera á íslensku, dönsku, frönsku, pólsku, japönsku, ensku osfrv. - bara svo lengi sem börnin lesa.

Í lok átaksins dregur Ævar út nöfn fimm barna og fá þau í verðlaun að verða persónur í nýrri ævintýrabók sem hann er að skrifa (Bernskubrek Ævars vísindamanns 2: Árás vélmennakennaranna) sem kemur út með vorinu hjá Forlaginu - svo það er til mikils að vinna.

Þetta er lestrarátak gert af bókaormi, til að reyna að búa til nýja bókaorma - en það er dýrategund sem má alls ekki deyja út.


Gangi ykkur vel!

 

-Ævar vísindamaður