Hvað er ADHD? - Fræðsla fyrir foreldra og aðstandendur

Fimmtudaginn 12. október kl. 17:00 verður fræðsla fyrir foreldra og aðstandendur um ADHD í Dalvíkurskóla.

Hvað er ADHD og hvernig birtist það? Sífellt fleiri fá ADHD greiningu og skilningur er sterkasta vopnið okkar til að bæta líðan og sjálfsmynd þeirra. Jóna Kristín Gunnarsdóttir grunnskólakennari og hegðunarráðgjafi ræðir um hvernig við getum stutt við og kennt okkur, börnunum, eða nánum fjölskyldumeðlimum að finna sína styrkleika og byggja upp sterka sjálfsmynd.
Samskipti heimilis og skóla, heimanám og skipulag eftir að heim er komið eru þættir sem tæpt er á. Þessi fræðsla er fyrir alla og mikilvægt að muna að oft eru vinir barna okkar með ADHD og við því partur af umhverfi þeirra.