Göngur og réttir

Vegna slæmrar veðurspár fyrir næstu helgi hefur verið ákveðið að flýta göngum í Dalvíkurbyggð. Sú ósk hefur komið fram að nemendur fái leyfi úr skóla til að aðstoða bændur við smölun. Þeir nemendur sem tök hafa á geta fengið leyfi til að fara í göngur og foreldrar eru beðnir um að tilkynna um það til ritara Dalvíkurskóla í síma 460-4980.