Göngudagur Dalvíkurskóla

Göngudagur skólans verður þriðjudaginn 1. sept.

Gengnar verða eftirtaldar leiðir.

 

1.  bekkur gengur upp að Seltóftum ásamt elstu nemendum leikskólans

2.  bekkur gengur upp að girðingu á Böggvisstaðardal

3.-4. bekkur gengur upp á Melrakkadal og fram að Brunnklukkutjörn

5.-6. bekkur gengur ýmist upp að Nykurtjörn eða Skeiðsvatni

7.-10. bekkur velur um að ganga upp á Bæjarfjall, Reykjaheiðina eða Vikið.

Nemendur þurfa að vera vel nestaðir og með drykk. Nauðsynlegt að vera í góðum skóm og klædd eftir veðri. Gott að hafa með aukasokka og jafnvel lítið handklæði. Nestið og aukafatnað er best að hafa í þægilegum bakpoka.

Lagt verður af stað með flesta hópa um kl. 8:00.