Góðverkadagur í Dalvíkurskóla

Góðverkadagur í Dalvíkurskóla

Í dag var góðverkadagur í skólanum. Nemendur fengu ýmis konar verkefni; upplestur á Dalbæ, aðstoð við þrif, snjómokstur, raða í hillur í búðinni, afhenda kerti og kökur og svo mætti lengi telja. Dagurinn gekk frábærlega fyrir sig og viljum við þakka öllum sem tóku þátt kærlega fyrir þátttökuna. Markmið dagsins er að minna á að bestu gjafirnar, vinátta, hjálpsemi og kærleikur, kosta ekki neitt.

Hér má sjá nokkrar myndir sem teknar voru í dag.