Góður árangur í stærðfræðikeppni

Karl Vernharð í 9. bekk varð í þriðja sæti stærðfræðikeppni Fjölbrautaskólans á Norðurlandi vestra og Menntaskólans á Tröllaskaga sem haldin var í síðustu viku. 15 nemendur kepptu til úrslita og voru auk Karls Vernharðs þau: Júlíana Björk, Katla Dögg og Yrja Mai.