Frábær skólalok hjá 9. bekk

Frábær skólalok hjá 9. bekk

Miðvikudaginn 5. júní var síðasti kennsludagurinn okkar í vetur. Eftir harðan vetur gátum við fagnað frábærum vetri í 9. bekk með því að grilla pylsur og sykurpúða fyrir ofan skógarreitinn. Vegna hita endaði dagurinn okkar að sjálfsögðu í vatnsslag þar sem að nánast allir fengu að finna fyrir því en kannski mest umsjónarkennarinn eins og sést á síðustu myndunum. Takk fyrir frábæran vetur. Myndir frá deginum má sjá hér.