Forvarnarleikritið Hvað ef?

Þriðjudaginn 8. maí er nemendum 8.-10. bekkjar boðið á forvarnarleikrit í Hofi, Akureyri. Þar munu nemenendur horfa á sýninguna Hvað ef? og hefst hún kl. 13:30, farið verður með rútu frá skólanum um kl. 12:40. Stefnt er að því að koma til baka fyrir kl. 16:00 Við ætlumst til að allir nemendur 8.-10. bekkjar horfi á þessa sýningu, þrátt fyrir að hún sé eftir skóla. Efni fræðslunnar verður nýtt í kennslu í skólanum næstu daga á eftir.

Kl. 20:00 verður foreldrasýning í Hofi og eru allir sem tök hafa á hvattir til að sjá sýninguna. Frítt er inn á sýninguna. Nánari upplýsingar eru á slóðinni: http://www.540floors.com/hvadef/