Dótadagur hjá 1. EoE

Fyrstu bekkingar gerðu sér glaðan dag á miðvikudaginn og mættu með alls kyns dót í skólann. Deginum var svo að mestu varið í frjálsan leik með dótið og skemmtu allir sér ljómandi vel, meðal annars í dúkkuleik, dýraleik og kappakstri. Hér má sjá myndir.