Djúpi diskurinn

Undanfarnar vikur hefur Ármann Einarsson, tónmenntakennari, unnið að því að taka upp söng allra bekkja skólans og gefa út á hljómdiski. Diskurinn kom út í gær og ber nafnið Djúpi diskurinn og hafa allir nemendur skólans fengið eintak til eignar. Við færum Ármanni sérstakar þakkir fyrir alla þá vinnu sem hann hefur lagt í diskinn.