Dagur rauða nefsins

Dagur rauða nefsins

Dagur rauða nefsins var haldinn hátíðlegur í Dalvíkurskóla og fengu þeir sem vildu rautt nef.Yngstu börnin voru frædd um tilgang þessa átaks og minnt á jafnaldra þeirra úti í stríðshrjáðu löndunum sem Unicef er að hjálpa. Dalvíkurskóli er mjög duglegur að styrkja Unicef og því var sjálfsagt að taka þátt í þessu líka.