Börn frá Ittoqqortoormiit í heimsókn

Þessa vikuna eru 10 grænlensk börn í heimsókn hjá okkur í skólanum. Krakkarnir koma frá bænum Ittoqqortoormiit á A-Grænlandi og gista í heimahúsum, fara á sundnámskeið, hestbak, golf, klifurveggin og margt fleira. Í dag fóru krakkarnir í heimsókn út á Byggðasafn til að skoða grænlenska sýningu sem þar var opnuð í gær. Krakkarnir eru á Dalvík í tilefni sýningarinnar og dönsuðu í Bergi við opnunina. Hér má sjá nokkrar myndir sem voru teknar í dag.