Bleikur dagur á morgun

Bleikur dagur á morgun

Á morgun er bleikur dagur og hvetjum við því nemendur og starfsfólk til að mæta í bleiku í skólann. Á heimasíðu Bleiku slaufunnar segir eftirfarandi um bleika daginn: "Njótum dagsins saman, sýnum mömmum okkar þakklæti og vekjum um leið athygli á árvekniátaki Bleiku slaufunnar og baráttunni gegn krabbameinum hjá konum."

Þessir ungu menn á myndinni mættu í bleiku á bleika deginum í fyrrahaust.