Birna Kristín vann í hönnunarkeppni

Birna Kristín vann í hönnunarkeppni

Nú á vordögum gafst 5. bekk, sem er vinabekkur leikskólans Krílakots tækifæri til að taka þátt í hönnunarsamkeppni. Keppnin snérist um að hanna merki fyrir leikskólann. Flestir í bekknum tóku þátt og margar góðar tillögur voru sendar inn. Í gær kom Dagbjört Ásgeirsdóttir leikskólastjóri Krílakots í heimsókn í bekkinn og tilkynnti að  Birna Kristín Kristbjörnsdóttir hefði borið sigur úr býtum. Myndin hennar verður nú tölvuunnin til þess að hægt sé að minnka hana og nota við ýmis tækifæri. Til hamingju Birna Kristín.