Árlegt samstarf eldri borgara og yngri nemenda Dalvíkurskóla

Sú skemmtilega hefð hefur skapast síðustu ár að eldri borgarar hafa boðið nemendum í yngri deild Dalvíkurskóla að koma í heimsókn í Mímisbrunn til að spila saman eina kennslustund. Markmið þessa samstarfs er fyrst og fremst að kynslóðirnar eigi góða stund saman og að nemendur kynnist eldri borgurum og samfélaginu betur. Þá eru spil góð leið til að efla stærðfræðikunnáttu barnanna.  Dagana 3.-6. febrúar munu nemendur úr 1.-7. bekk fara í heimsókn í Mímisbrunn og eiga þar án efa góða stund við spil og spjall.