Æfing fyrir spurningakeppni

Æfing fyrir spurningakeppni

Í gær fengum við heimsókn frá spurningaliði Grenivíkurskóla, en þau komu og kepptu við liðið okkar tvo æfingaleiki sem undirbúning fyrir undanúrslitin sem Dalvíkurskóli er kominn í. Lið Dalvíkurskóla sigraði báðar viðureignirnar, þá fyrri 13-10 og þá seinni örugglega 22-13.

Liðið skipuðu Jóhann Ólafur Sveinbjarnarson, Viktor Daði Sævaldsson og Elvar Óli Marinósson en sá síðastnefndi keppti í stað Anítu Lindar Björnsdóttur sem var veik.