9. bekkur á hreinsunardegi

Á föstudaginn var rusladagur hjá Dalvíkurskóla. Við í 9. bekk tókum daginn snemma og fórum og tíndum rusl upp úr 9:30, þegar við vorum búin að tína vel af rusli eða 128 kg samtals þá var ekki annað hægt en að busla aðeins í sjónum þar sem að veðrið var svo gott. Nokkrir hugrakkir 9. bekkingar stungu sér til sunds en stærsti hlutinn dýfði bara rétt tásunum í sjóinn. Við náðum þó einni frábærri hópmynd af stærsta hluta hópsins. Myndir frá þessum frábæra degi má sjá hér.