
Laus störf
Þroskaþjálfi
Íbúðakjarni / Skammtímavistun óskar eftir að ráða metnaðarfullan, jákvæðan og þjónustulundaðan þroskaþjálfa í 89% vaktavinnustarf, en um framtíðarstöðu er að ræða. Ef ekki næst að ráða þroskaþjálfa í starfið höfum við áhuga á að ráða iðjuþjálfa, sem svo þarf þá að uppfylla menntunar- og hæfniskröfur eftir hvað við á. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Frístundarleiðbeinandi
Frístund bráðvantar frístundarleiðbeinanda í u.þ.b. 45% starfshlutfall í frístund og sumarfrístund (starfshlutfall eykst á opnunartíma sumarfrístundar). Meginmarkmið starfsins er að bjóða upp á innihaldsríkt og þroskandi frístundastarf fyrir börn á aldrinum 6 – 9 ára eftir að hefðbundnum skóladegi barna lýkur. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Stoðþjónusta fyrir einstaklinga með sérþarfir
Félagsþjónustu Dalvíkurbyggðar bráðvantar starfsfólk til starfa við stoðþjónustu (áður félagsleg liðveisla) við einstaklinga með sérþarfir. Um er að ræða tímavinnu í allt að 15 tíma á mánuði. Vinnutími er breytilegur oftast nær seinnipart dags og/eða um helgar. Starfið gæti því hentað vel með námi eða annarri vinnu. Umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri og æskilegt að viðkomandi sé með bílpróf. Stoðþjónusta er persónulegur stuðningur við einstakling sem miðar að því að rjúfa félagslega einangrun og veita viðkomandi félagslegan stuðning á ýmsum sviðum. Stuðningsþjónusta stuðlar meðal annars að því að hver og einn getið notið félags- og menningarlífs á eigin forsendum.
