Fara í efni

Íbúðakjarni / Skammtímavistun: Þroskaþjálfi

Íbúðakjarni / Skammtímavistun óskar eftir að ráða metnaðarfullan, jákvæðan og þjónustulundaðan þroskaþjálfa í 89% vaktavinnustarf, en um framtíðarstöðu er að ræða. Ef ekki næst að ráða þroskaþjálfa í starfið höfum við áhuga á að ráða iðjuþjálfa, sem svo þarf þá að uppfylla menntunar- og hæfniskröfur eftir hvað við á. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. 

Þjónusta í Íbúðakjarna og Skammtímavistun miðast við að efla færni, auka sjálfstæði, stuðla að jákvæðri sjálfsmynd og auka lífsgæði notenda. Leitast er að koma til móts við þarfir hvers og eins, laga þjónustuna að breytilegum þörfum og aðstæðum notenda á hverjum tíma.

Helstu verkefni

  • Starfar á heimili fyrir fatlaða einstaklinga með mismunandi þarfir.
  • Sinnir faglegu starfi í samstarfi og samráði við þjónustunotendur og forstöðumann.
  • Ber ábyrgð á gerð og eftirfylgni þjónustuáætlana fyrir þjónustunotendur eftir þörfum hvers og eins.
  • Ber ábyrgð á að velferðarúrræðum þjónustunotenda.
  • Tekur þátt í sköpun og þróun nýrra tækifæra fyrir þjónustunotendur.
  • Er vaktstjóri á helgarvöktum.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Þroskaþjálfamenntun
  • Reynsla af starfi með fötluðu fólki mikill kostur
  • Sveigjanleiki og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði, jákvæðni og sjálfstæð vinnubrögð
  • Íslenskukunnátta á stigi C1 (samkv. evrópska tungumálarammanum)
  • Bílpróf
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur.

Næsti yfirmaður er forstöðumaður í Íbúðakjarna.

Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.

Sótt er um starfið á umsóknarvef Dalvíkurbyggðar. Með umsókn skal fylgja afrit af ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar, rökstuðningur fyrir hæfni í starfið, stutt persónuleg kynning ásamt nöfnum umsagnaraðila. Við ráðningu eru jafnréttissjónarmið jafngild öðrum málefnalegum sjónarmiðum og hvetjum við áhugasama að sækja um óháð kyni og uppruna. Dalvíkurbyggð áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.

Frekari upplýsingar um starfið veita Hildur B. Jónsdóttir forstöðumaður Íbúðakjarna og Skammtímavistunar (hildurb@dalvikurbyggd.is) og Þórhalla Karlsdóttir ráðgjafaþroskaþjálfi (tota@dalvikurbyggd.is)   

Upplýsingar um laun og starfskjör veitir launa- og mannauðsfulltrúi Dalvíkurbyggðar launafulltrui@dalvikurbyggd.is 

Umsóknarfrestur er til og með 21. október 2026.