Fara í efni

Leikskólinn Krílakot: Leikskólakennarar

Viltu verða hluti af öflugu og metnaðarfullu skólasamfélagi?

Leikskólinn Krílakot í Dalvíkurbyggð vill ráða tvo leikskólakennara til frambúðar í 100% störf, með æskilegri ráðningu sem fyrst. Á Krílakoti leggjum við áherslu á hlýlegt og metnaðarfullt leikskólastarf þar sem leikur, sköpun, hreyfing og útivera skipa stóran sess. Við viljum skapa umhverfi þar sem börnin fá að njóta sín á eigin forsendum og starfsfólk tekur virkan þátt í fjölbreyttu og lifandi leikskólastarfi.

Gildi Krílakots eru Gleði – Sköpun – Þor og má finna nánari kynningu á starfi Krílakots hér.

Helstu verkefni:

  • Vinnur að uppeldi og menntun barna og verkefnum sem því tengjast

  • Tekur þátt í skipulagningu faglegs starfs

  • Tekur þátt í þróunarverkefnum leikskólans

  • Vinnur að faglegu starfi og samvinnu innan skólans

  • Samstarf við aðrar stofnanir og sérfræðinga.

  • Foreldrasamstarf

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf til að nota starfsheitið kennari eða önnur menntun sem nýtist í starfi

  • Þekking og reynsla á leikskólastigi og umönnun barna æskileg

  • Áhugi um fræðslu barna og velferð þeirra

  • Jákvæðni og sveigjanleiki

  • Góð færni í mannlegum samskiptum

  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum

  • Áhugi um fræðslu barna og velferð þeirra

  • Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum

  • Hreint sakavottorð

Umsóknafrestur er til og með 3. nóvember 2026

Umsækjandi þarf að hafa íslenskukunnáttur á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.

Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands ísl. sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna Félags leikskólakennara. Ef ekki fæst leikskólakennari til starfa verður ráðinn starfsmaður með aðra uppeldismenntun eða leiðbeinandi og er þá greitt samkvæmt viðkomandi kjarasamningi. Frekari upplýsingar um launakjör veitir launafulltrui@dalvikurbyggd.is 

Sótt er um starfið á umsóknarvef Dalvíkurbyggðar. Umsóknum skal fylgja greinargóð náms- og starfsferilsskrá auk staðfest afrit af prófskírteinum (ef við á), sem og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni. Við ráðningu eru jafnréttissjónarmið jafngild öðrum málefnalegum sjónarmiðum og hvetjum við áhugasama að sækja um óháð kyni. Dalvíkurbyggð áskilur sér rétt að hafna öllum umsækjendum. 

Frekari upplýsingar veitir: Elvý G. Hreinsdóttir leikskólastjóri Krílakots í síma 460-4950 eða á netfangið elvy@dalvikurbyggd.is