Fara í efni

Frístund: frístundarleiðbeinandi

Frístund óskar eftir að ráða frístundarleiðbeinanda í u.þ.b. 45% starfshlutfall í frístund og sumarfrístund (starfshlutfall eykst á opnunartíma sumarfrístundar), en um framtíðarstarf er að ræða. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf í um miðjan ágúst 2026. 

Upplýsingar um starfið

Meginmarkmið starfsins er að bjóða upp á innihaldsríkt og þroskandi frístundastarf fyrir börn á aldrinum 6 – 9 ára eftir að hefðbundnum skóladegi barna lýkur. Markmið starfsins er að efla félags- og samskiptafærni barna í gegnum leik og starf frístundar. Starfsfólk frístundar leitast við að mæta börnum eftir þeirra þörfum, til að efla sjálfstraust, sjálfsstæði og félagsfærni þeirra.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Leiðbeina og styðja börn í leik og starfi.
  • Skipuleggja faglegt starf og leiða fjölbreyttar og skapandi frístundastundir fyrir börn.
  • Tryggja öryggi og vellíðan þátttakenda í öllu starfi.
  • Stuðla að samstarfi við foreldra, skóla og aðra samstarfsaðila innan sveitarfélagsins.
  • Fylgja stefnu Dalvíkurbyggðar í frístundamálum og leggja sitt af mörkum til þróunar starfsins.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi.
  • Áhugi að vinna með börnum. 
  • Góð hæfni í samskiptum, samvinnu og leiðsögn hópa.
  • Frumkvæði, ábyrgðartilfinning og skipulagshæfni.
  • Jákvætt viðhorf, sveigjanleiki og færni til að takast á við fjölbreytt verkefni.
  • Íslenskukunnátta á stigi A2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
  • Hreint sakavottorð samkvæmt lögum.

Umsóknarfrestur er til og með 28. júlí 2026

Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.

Sótt er um starfið í gegnum þjónustugátt á heimasíðu Dalvíkurbyggðar. Með umsókn skal fylgja afrit af ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar, rökstuðningur fyrir hæfni í starfið, stutt persónuleg kynning ásamt nöfnum umsagnaraðila. Við ráðningu eru jafnréttissjónarmið jafngild öðrum málefnalegum sjónarmiðum og hvetjum við áhugasama að sækja um óháð kyni og uppruna. Dalvíkurbyggð áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.

Frekari upplýsingar veitir Hera M. Guðmundsdóttir frístundafulltrúi hera.margret@dalvikurbyggd.is en upplýsingar um laun og starfskjör veitir mannauðs- og launafulltrúi Dalvíkurbyggðar launafulltrui@dalvikurbyggd.is