Fara í efni

Starfsmannasíða

Starfsmannahandbók

Handbók fyrir starfsmenn Dalvíkurbyggðar

Handbókinni er ætlað að vera leiðarvísir fyrir starfsfólk Dalvíkurbyggðar og byggir á mannauðsstefnu sveitarfélagsins að grunninum til. Hún er til upplýsingar og leiðbeiningar um reglur, leiðbeiningar, verkferla og vinnubrögð og veitir beinan aðgang að gildandi lögum, reglugerðum og kjarasamningum.  Starfsmannahandbókin er sett upp þannig að megininntak stefna og áætlana er kynnt í handbókinni en hægt er að lesa heildarskjalið með því að smella á tengilinn og þá á skjalið að opnast. Ábyrgðamenn handbókarinnar eru sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs, sviðsstjóri félagsmálasviðs og launafulltrúi. Vinsamlegast leitið til þeirra ef að þið hafið athugasemdir er spurningar er varða handbókina.