Félagsþjónusta: stoðþjónusta fyrir einstaklinga með sérþarfir
Félagsþjónusta Dalvíkurbyggðar óskar eftir starfsfólki til starfa við stoðþjónustu (áður félagsleg liðveisla) við einstaklinga með sérþarfir. Um er að ræða tímavinnu í allt að 15 tíma á mánuði. Vinnutími er breytilegur oftast nær seinnipart dags og/eða um helgar. Starfið gæti því hentað vel með námi eða annarri vinnu. Umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri og æskilegt að viðkomandi sé með bílpróf.
Stoðþjónusta er persónulegur stuðningur við einstakling sem miðar að því að rjúfa félagslega einangrun og veita viðkomandi félagslegan stuðning á ýmsum sviðum. Stuðningsþjónusta stuðlar meðal annars að því að hver og einn getið notið félags- og menningarlífs á eigin forsendum. Um er að ræða allt að 15 tímar á mánuði.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Persónulegur stuðningur í að aðstoða einstaklinga við ýmsar athafnir daglegs lífs.
- Veita persónulega ráðgjöf, sem miðar einkum að því að rjúfa félagslega einangrun, innan sem utan heimilis. Sem dæmi má nefna að fara í bíó, leikhús, kaffihús, bókasafn, eiga notalegt spjall, bíltúr gönguferð, rækt, sund og fleira.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Hlýlegt viðmót, jákvæðni og umhyggja
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði í starfi og geta til að vinna sjálfstætt
- Að sýna ábyrgð
- Hugmyndaríki og sveigjanleiki
- Heint sakavottorð í samræmi við lög og reglur
- Bílpróf
Ofangreindar hæfniskröfur eru ekki í áhersluröð. Auk þeirra hæfniskrafna sem tilgreindar eru er leitað að lausnamiðuðum, metnaðarfullum einstaklingi í starfið sem ber hag þjónustunotenda fyrir brjósti.
Við ráðningu eru jafnréttissjónarmið jafngild öðrum málefnalegum sjónarmiðum og hvetjum við áhugasama að sækja um, óháð kyni og uppruna. Vakin er athygli á að þörf er á fleiri körlum til starfa á verksviðinu. Greitt er samkv. kjarasamningi Sambands ísl. sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélagi. Sótt er um starfið á umsóknarvef Dalvíkurbyggðar.
Með umsókn skal skila ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjenda.
Umsóknarfrestur 11.09.2026
Upplýsingar gefur Þórhalla Franklín Karlsdóttir (Tóta), ráðgjafaþroskaþjálfi félagsþjónustu Dalvíkurbyggðar tota@dalvikurbyggd.is eða í síma 460-4900.