
Skóla- og frístundastarf
Dalvíkurbyggð leggur ríka áherslu á að skapa öflugt og metnaðarfullt skólastarf sem tekur mið af þörfum nútímans og undirbýr nemendur fyrir framtíðina. Í skólastarfinu er lögð sérstök áhersla á að hver og einn nemandi fái notið sín, bæði faglega og félagslega, og að skólarnir verði öruggur og hvetjandi vettvangur þar sem vellíðan, virðing og þátttaka eru í fyrirrúmi.
Velferð nemenda er hornsteinn í öllu starfi skólanna. Leitast er við að skapa jákvætt og styðjandi námsumhverfi þar sem tekið er mið af ólíkum þörfum, styrkleikum og áhugasviðum nemenda. Mikil áhersla er lögð á góð samskipti milli nemenda, starfsfólks og foreldra, enda er samvinna þessara aðila lykillinn að árangri. Unnið er markvisst að forvörnum, geðrækt og félagsfærni, með það að markmiði að efla sjálfstraust, ábyrgðarkennd og vellíðan allra nemenda.
Umhverfismál skipa einnig stóran sess í skólastarfi Dalvíkurbyggðar. Skólarnir leggja áherslu á að efla umhverfisvitund nemenda og hvetja þá til að taka ábyrgð á eigin umhverfi. Með verkefnum tengdum sjálfbærni, endurvinnslu og vernd náttúrunnar er unnið að því að kenna nemendum mikilvægi þess að umgangast náttúruna af virðingu og skynsemi. Þannig eru nemendur virkir þátttakendur í að móta betri framtíð og læra að taka upplýstar og ábyrgar ákvarðanir.
Jafnframt er lagt upp úr fjölbreyttu og skapandi námi þar sem nýttar eru ólíkar kennsluaðferðir til að mæta mismunandi námsstílum. Nýsköpun, gagnrýnin hugsun og samvinna eru lykilþættir í náminu og nemendur eru hvattir til að taka frumkvæði og prófa sig áfram. Með þessu móti er stuðlað að aukinni þátttöku og áhuga nemenda á náminu.
Með þessari heildstæðu sýn á skólastarf leitast Dalvíkurbyggð við að tryggja að skólarnir séu lifandi og framsæknir samfélagsmiðjur þar sem börn og ungmenni fá tækifæri til að dafna, læra og vaxa í öruggu og styðjandi umhverfi.

