Fara í efni

Grunnskóli

Það er einn grunnskóli í Dalvíkurbyggð, Dalvíkurskóli á Dalvík. 
Dalvíkurskóli er Grænfánaskóli.

Dalvíkurskóli er grunnskóli í Dalvíkurbyggð sem þjónar nemendum í 1.–10. bekk. Skólinn er einsetinn og þar stunda um 230–240 nemendur nám í fjölbreyttu og öflugu skólastarfi.
Í Dalvíkurskóla er lögð rík áhersla á að skapa hvetjandi og styðjandi námsumhverfi þar sem hver og einn fær tækifæri til að njóta sín og þroskast á eigin forsendum. Einkunnarorð skólans eru „Þekking og færni – virðing og vellíðan“ og spegla þau vel þann anda sem ríkir í daglegu starfi hans.
Kennsla í skólanum byggir á fjölbreyttum aðferðum, meðal annars teymiskennslu, og er leitast við að mæta ólíkum þörfum nemenda með snemmtækri íhlutun og einstaklingsmiðaðri nálgun. Sérstök áhersla er lögð á læsi, notkun upplýsingatækni og skapandi starf, auk þess sem unnið er markvisst eftir Uppbyggingarstefnunni til að stuðla að jákvæðum samskiptum og góðum skólabrag.
Dalvíkurskóli er einnig Grænfánaskóli og leggur mikla áherslu á umhverfismennt og sjálfbærni, þar sem nemendur taka virkan þátt í að efla umhverfisvitund og ábyrgð. 

Öflugt samstarf er við foreldra og nærsamfélagið, og lögð er áhersla á að skólinn sé lifandi vettvangur þar sem gleði, virðing og vellíðan nemenda og starfsfólks eru í fyrirrúmi.