Fara í efni

Félagsmiðstöðin Dallas

Dallas er félagsmiðstöð á vegum Dalvíkurbyggðar, staðsett á efri hæð Víkurrastar. Félagsmiðstöðin er fyrir börn og ungmenni á aldrinum 10–16 ára sem eru búsett í Dalvíkurbyggð. 

Markmið starfsins er að skapa öruggt og jákvætt umhverfi þar sem ungmenni geta átt góðar stundir með jafnöldrum sínum, tekið þátt í fjölbreyttu starfi og fundið eitthvað við sitt hæfi. Aðgangur að félagsmiðstöðinni á opnunartíma er gjaldfrjáls. Kostnaði vegna viðburða er haldið í lágmarki.


Opnunartímar

5.–7. bekkur 8. - 10. bekkur

Mánudagar og miðvikudagar

Mánudagar og miðvikudagar

Kl. 16:30–18:00

Kl. 19:30–22:00

Föstudagar

Kl. 20:00–22:30

 

Í Dallas er lögð áhersla á uppbyggilegt félags- og tómstundastarf þar sem ungmennin sjálf fá tækifæri til að hafa áhrif á starfsemina. Starfið í Dallas er fjölbreytt og tekur mið af áhugasviði ungmennanna hverju sinni. Mikil áhersla er lögð á unglingalýðræði og virkni ungmennanna í starfinu. Í Dallas starfar nemendaráð sem ungmennin sjálf skipa og kemur það að skipulagningu viðburða og starfsemi félagsmiðstöðvarinnar. Skipulögð dagskrá er frá lok ágúst fram í byrjun júní.

Dallas tekur einnig þátt í samstarfi við aðrar félagsmiðstöðvar á Norðurlandi og víðar um landið, meðal annars í verkefnum og viðburðum á vegum Samfés. Meðal fastra viðburða eru NorðurORG, Samfestingurinn og Stíll.

Í Dallas er lögð áhersla á að efla jákvæða sjálfsmynd, heilbrigð samskipti og vellíðan ungmenna. Reglulega er boðið upp á fræðslu og umræður um málefni sem skipta ungmenni máli, meðal annars kynfræðslu, geðrækt, fordóma, samskipti og forvarnir gegn vímuefnum.

Félagsmiðstöðin leggur áherslu á öruggt og jákvætt umhverfi þar sem gagnkvæm virðing, ábyrgð og góð framkoma eru höfð að leiðarljósi.

Í Dallas er lögð áhersla á gott samstarf við foreldra, forráðamenn og aðra sem koma að uppeldi og velferð barna og ungmenna í Dalvíkurbyggð. Félagsmiðstöðin leitast við að vera sýnileg, opin og aðgengileg öllum sem vilja kynna sér starfsemina.

Hægt er að leigja húsnæði félagsmiðstöðvarinnar fyrir einkasamkvæmi með því að senda tölvupóst á: hera.margret@dalvikurbyggd.is

 

Allar nánari upplýsingar veitir 
Hera Margrét Guðmundsdóttir, frístundarfulltrúi Dalvíkurbyggðar - hera.margret@dalvikurbyggd.is

Þið finnið okkur á Instagram og TikTok: @felagsmidstodindallas