Fara í efni

Frístund

Frístund er í boði börn í 1.–4. bekk sem eiga lögheimili í Dalvíkurbyggð. Markmið Frístundar er að bjóða börnum öruggt, uppbyggilegt og ánægjulegt umhverfi utan hefðbundins skólatíma þar sem áhersla er lögð á leik, félagsfærni, útivist og fjölbreytt tómstundastarf.

Frístund er starfrækt á skóladögum frá því að kennslu lýkur og til kl. 16:15. Vistunartími er sveigjanlegur og hægt er að sækja um vistun frá einum og upp í fimm daga í viku. Í Frístund er boðið upp á fjölbreytt tómstundastarf, skapandi verkefni, leik, útivist og hreyfingu auk þess að efla félagslega þátttöku og samveru. 

Frístund er starfrækt á skólaárinu. Lokað er í jólaleyfi, páskafríi og vetrarleyfi en starfsemi er á skipulagsdögum samkvæmt nánari upplýsingum hverju sinni.

Frístund er starfrækt í húsnæði Dalvíkurskóla en er sjálfstæð starfsemi á vegum Dalvíkurbyggðar. Mikilvægt er að allar upplýsingar sem varða vistun barns í Frístund berist beint til starfsmanna Frístundar. Þetta á meðal annars við um tilkynningar um veikindi og forföll, breytingar á heimferð eða aðrar upplýsingar sem geta haft áhrif á dvöl barnsins í Frístund.

Sótt er um vistun í Frístund með rafrænni umsókn á þjónustugátt Dalvíkurbyggðar. Dvalarsamningur gildir út skólaárið en hægt er að breyta fyrirkomulagi vistunar milli mánaða. Óski foreldri eða forráðamaður eftir breytingu á dvalartíma skal senda skriflega beiðni í tölvupósti fyrir 15. dag mánaðar. Breyting tekur gildi frá og með 1. degi næsta mánaðar.

Hér má sjá dagatal frístundar fyrir veturinn 2026-2027


Gjald fyrir vistun í Frístund fer samkvæmt gildandi gjaldskrá Dalvíkurbyggðar. Síðdegishressing er innifalin í vistun.

Nánari upplýsingar veita starfsmenn Frístundar í netfanginu fristund@dalvikurbyggd.is. Einnig er hægt að hafa samband við frístundarfulltrúa Dalvíkurbyggðar, Heru Margréti Guðmundsdóttur, í netfanginu hera.margret@dalvikurbyggd.is.

Gjaldskrá frístundar:

Frístund

Frístund Skólaárið 2026-2027

Dvalargjöld per.klst.

470

Hressing per.dag

322

*Gera má ráð fyrir hækkun gjaldskrá frá 1.október 2026

Veittur er systkinaafsláttur af frístundagjöldum :
1. Barn greiðir 100% gjald
2. Barn greiðir 70%
3. Barn greiðir 0% (á við um ódýrasta gjaldið)
Systkinaafsláttur er aðeins veittur ef bæði eða öll systkini eru skráð í Frístund. Systkinaafsláttur er ekki veittur vegna systkina sem eru á Krílakoti eða Kötlukoti.
Einstæðir foreldrar og námsmenn fá 30% afslátt af frístundagjöldum. Námsmenn verða að skila inn vottorði frá skóla að um fullt nám sé að ræða (Lágmark 22ECTS í háskólanámi eða 15 einingar í námi í framhaldsskóla) við skóla sem er metið námshæft hjá MSNM.

Skilmálar vegna frístundar:
Greitt er að lágmarki fyrir 10 klst. á mánuði. Sótt er um hvert skólaár (ágúst – júní) fyrir sig. Ef þjónustu er sagt upp skal það gert fyrir 15. dag mánaðar og tekur uppsögnin þá gildi næstu mánaðarmót þar á eftir. Greitt er mánaðarlega og kemur reikningur inn í heimabanka forráðamanna. Uppsögn skal berast skriflega í tölvupósti til Frístundafulltrúa hera.margret@dalvikurbyggd.is