Fara í efni

Eineltisteymi Dalvíkurbyggðar

Stefna og viðbragðsáætlun Dalvíkurbyggðar er sett í samræmi við 38. gr. laga nr. 46/1980 um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum og reglugerð nr. 1009/2015 um aðgerðir gegn einelti, kynferðislegri áreitni, kynbundinni áreitni og ofbeldi á vinnustöðum. Stefnan og viðbragðsáætlun nær til alls starfsfólks og kjörinna fulltrúa  Dalvíkurbyggðar sem og verktaka sem starfa á vegum sveitarfélagsins og verður stuðst við í öllum þeim tilvikum þar sem starfsmaður, kjörinn fulltrúi  eða verktaki er grunaður um að leggja starfsmann, kjörinn fulltrúa eða verktaka í einelti, beita áreitni, ofbeldi eða annarri ótilhlýðilegri háttsemi.

Hægt er að senda póst á teymið á eineltisteymid@dalvikurbyggd.is

Eftir tilnefningar frá starfsmönnum fagsviðanna þá skipa eftirfarandi fulltrúar eineltisteymi Dalvíkurbyggðar: 

  • Díana Friðriksdóttir, frá fræðslu- og menningarsviði.
  • Haukur Guðjónsson, frá framkvæmdasviði.
  • Katrín Sif Ingvarsdóttir, frá fræðslu- og menningarsviði.
  • Silja Dröfn Jónsdóttir, frá fjármála- og stjórnsýslusviði.