Fyrsta stigið skiptist í tvö undirstig – grunnþjónustu og fyrsta stigs þjónustu. Grunnþjónusta er aðgengileg öllum börnum í ungbarnavernd, leik-, grunn- og framhaldsskólum. Grunnþjónustan skiptir miklu máli fyrir farsæld barna og með því að grípa snemma inn í getum við komið í veg fyrir ýmiss konar erfiðleika síðar meir.
Dæmi um góða grunnþjónustu er að leggja áherslu á forvarnir, aðgerðir gegn einelti og ofbeldi og aðgerðir sem styðja við jákvæðan skólabrag.
Fyrsta stigs þjónustu tilheyrir einnig einstaklingsbundinn og snemmtækur stuðningur sem hefur það að markmiði að styðja við farsæld barns. Hér er um að ræða þjónustu umfram grunnþjónustu. Það er stuðningur við börn sem glíma við vægan vanda og stuðningsaðgerðir sem koma í veg fyrir að vandinn aukist og vaxi. Þar má nefna sem dæmi námsörðugleika, hegðunarvanda barns, afleiðingar eineltis og annarra áfalla eða minniháttar heilsufarsvanda.
Gott er að hafa í huga að sú þjónusta sem barnið fær er stigskipt en ekki mál barnsins sem slíks. Þannig geta börn fengið þjónustu á fleiri en einu þjónustustigi.