Aðdragandi farsældarlaganna
Samþætting þjónustu í þágu farsældar barna

Vinna við breytingar í þágu barna hófst á vormánuðum 2018 þegar Ásmundur Einar Daðason, þá félags- og jafnréttismálaráðherra, boðaði til ráðstefnu um snemmtæka íhlutun í málefnum barna.
Í framhaldinu skrifuðu fimm ráðherrar og Samband íslenskra sveitarfélaga undir viljayfirlýsingu í þeim tilgangi að brjóta niður múra milli kerfa, bæta þjónustu í þágu barna og skapa barnvænt samfélag.
Í janúar 2022 tóku lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna gildi (nr. 86/2021), lög sem oft eru nefnd farsældarlögin til einföldunar. Það mun taka tíma að innleiða ný lög og nýja hugsun og því gefum við okkur 3–5 ár í innleiðingartímabilið.
Við ætlum öll að hjálpast að við þetta.